Velkomin á síður NordForsk!

Á þessum síðum finnurðu upplýsingar um NordForsk. Síðurnar eru á einu Norðurlandamáli og ensku – veldu tungumál efst á síðunni fyrir mismunandi útgáfur. Hér kynnum við NordForsk á íslensku í stuttu máli.

Um NordForsk

NordForsk er stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Stofnunin fjármagnar norrænt rannsóknasamstarf og veitir ráð og tillögur um norræna vísindastefnu.

Hlutverk NordForsk er að auka virði þess starfs sem þegar á sér stað á Norðurlöndum og þar með að efla norrænar rannsóknir og áhrif þeirra í Evrópu og um heim allan. Á skipulagðan hátt er leiddir saman hópar frá öllum Norðurlöndunum til að vinna saman að norrænum áætlunum með sameiginlegu fjármagni. Þannig stuðlar NordForsk að hágæðarannsóknum.

NordForsk skapar einnig vettvang stefnumótandi umræðu um vísindi og gefur Norrænu ráðherranefndinni best möguleg ráð sem grundvöll við að móta sameiginlega vísindastefnu og forgangsröðun.

Nánar um þetta á vefsíðu um stefnu NordForsk (2011-2014) hér

Greining og ráðgjöf

Mikilvægur hluti af verkefnum NordForsk er að vera stefnumótandi ráðgjafi og sinna greiningum og athugunum á norrænum rannsóknum og rannsóknastefnu. Greiningarnar eru góð undirstaða fyrir frekari ákvarðanatöku um norræn verkefni til framtíðar. Ritaröðin  Policy Briefs er dæmi um hvernig NordForsk vinnur að þessu.

Hlutverk NordForsk er einnig að skilgreina og benda á áherslusvið innan rannsókna sem koma til greina í norrænu samstarfi og stuðla að sameiginlegum auglýstum styrkjum.

Fjármögnun rannsókna

NordForsk styrkir samstarf á öllum sviðum rannsókna. Verkefni verður yfirleitt að vinna í samstarfi a.m.k. þriggja Norðurlanda eða sjálfstjórnarsvæða. Styrkir eru auglýstir opinberlega og veittir að loknu jafningjamati.

NordForsk fær grunnfjármögnun (117 milljónir norskra króna árið 2011), auk viðbótafjárveitinga til sérstakra verkefna frá Norrænu ráðherranefndinni. Að auki fæst fjármögnun hjá rannsóknaráðum þjóðanna, og öðrum fjármögnunaraðilum.

Nánari upplýsingar um fjármögnunina hér

Saga

Rannsókna- og nýsköpunarsamstarfi á Norðurlöndum er skipt á milli tveggja aðskildra sviða sem vinna þó saman; annars vegar rannsóknir og hins vegar nýsköpun. Stofnanirnar tvær NordForsk og Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe) voru settar á laggirnar til að hafa umsjón með norræna rannsókna- og nýsköpunarsviðinu.

Starfsemi stofnananna byggir á eftirfarandi tveimur úttektarskýrslum frá árinu 2004:

Norræna ráðherranefndin stofnaði NordForsk 1. janúar 2005. Stofnunin er norræn stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina um menntun og rannsóknir (MR-U). Markmið stofnunarinnar er að efla samstarf milli Norðurlanda á sviði rannsókna, nýsköpun sem er byggð á rannsóknum, stuðla að hágæðarannsóknum, ásamt því að innleiða norræna rannsókna- og nýsköpunarsviðið (NORIA). Nánari upplýsingar um NORIA hér

NordForsk varð til við sameiningu verkefna tveggja stofnana; Norræna rannsóknaráðsins og Norrænu vísindaakademíunnar (NorFA).
NordForsk er hluti af norrænum stofnunum og samtökum. Nánari upplýsingar um þessar stofnanir eru á vefsíðum Norrænu ráðherranefndarinnar.